Betri borgarbragur – BBB
Gláma-Kím er þátttakandi í verkefninu BBB / Betri borgarbragur. BBB er samstarfsverkefni um rannsóknir í skipulagsfræði þar sem fjallað er um hið byggða umhverfi út frá sjálfbærum og hagrænum sjónarmiðum.
Áhersla er lögð á greiningu á höfuðborgarsvæðinu – Reykjavík og nágrenni.
Verkefnið hlaut öndvegisstyrk til þriggja ára úr Tækniþróunarsjóði Rannís haustið 2009.
Að verkefninu standa arkitektastofurnar Gláma-Kím, Hús og skipulag, ASK, Kanon, Tröð, Harpa Stefánsdóttir arkitekt og fulltrúi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Háskóla Íslands.
Verkefninu tengist fjöldi aðila með þverfaglega þekkingu, bæði innanlands og erlendis, sem lýst hefur yfir áhuga á þátttöku.
Gláma-Kím vinnur að rannsókn á sjálfbærnistuðlum hverfiseininga og rannsókn á skipulagssögu Reykjavíkur :
- Borgarskipulag innan Hringbrautar – fram til 1934
- Samfella & rof
- Borgin innan Hringbrautar / úthverfi / neðra Breiðholt
- Samfella upp úr 1960 & rof
- Tengsl aðila við erlendar kenningar og strauma
- Bakgrunnur hverfiseininga
- Samspil skipulags- og lýðheilsufræði við stjórnmál og stjórnsýslu
- Slóð þekkingar og hugmynda
- Rammi rannsóknarinnar var kynntur á vettvangi Docomomo – og efni um hana birt í safni Docomomo : „Living and Dying in the Urban Modernity“.
|