Borgarferðir erlendisGönguferðir í ReykjavíkEndurmenntunar- og rannsóknarferðirGláma-Kím beitir sér fyrir skoðunarferðum starfsmanna sinna til erlendra borga. Ferðirnar eru burðarás í endurmenntunaráætlun fyrirtækisins og eru vandlega undirbúnar og áhersla lögð á að tengja efni þeirra við faglega umræðu í fyrirtækinu og verkefni sem það vinnur að – skoðuð eru mannvirki, skipulag og hönnun. Skipulagðar eru skemmri og lengri skoðunarferðir um höfuðborgarsvæðið til að skoða skipulagssögu og húsagerð í tengslum við rannsóknarstarf haustferða undanfarinna ára og BetriBorgarBrags verkefnið. |