The University of Akureyri
The new building is built adjacent to and surrounding the older university buildings. Emphasis is placed on a uniform and consistent style both in new-builds and refurbishments. The distinctive style creates a solid frame for the varied university life. The older buildings and the site set the tone for a precise and careful design approach. The individual units are relatively small and are interconnected to create a unified whole by a glass corridor building. The distinctive landscape is the frame for delicate garden spaces and a square connects the university area with the town. The square will be surrounded by buildings on three sides and from it one enters the main departments of the university.
The buildings, the square and the trees form a contrast to the surrounding landscape. The outdoor areas of the university are designed to be used both by the university and by the Akureyri community in general. A walking path that connects the residential areas below and above the university grounds is curved in onto the university square for an open interaction between the university and the town.
View more images and drawings (Icelandic only).
Háskólinn á Akureyri - Sólborg
Háskólinn er byggður við og utan um eldri byggingar að Sólborg. Í nýbyggingum og endurbótum á eldra húsnæði Háskólans á Akureyri er áhersla lögð á heillegt svipmót stofnunarinnar. Fast mótað yfirbragð bygginganna myndar trausta umgjörð um margslunginn veruleika skólans. Eldri byggingar og staðhættir að Sólborg gefa tóninn fyrir nákvæma og varfærnislega nálgun. Smágerðum byggingareiningum er raðað saman og þær tengdar í eina heild með glerjuðum tengigangi. Þær mæta landslagi klettaholtsins sem umgjörð um fínleg garðrými en munu mynda rausnarlegt bæjarrými, háskólatorg, út að bænum. Torgið verður umlukið byggingum á þrjá vegu og frá því eru inngangar í helstu deildir háskólans.
Byggingarnar, torgið og trjáröðin mynda andhverfu við náttúruna umhverfis með formlegu bæjarrými innan útivistarsvæðisins. Göngustígur sem tengir efri byggðir Akureyrar við Glerárhverfið er sveigður inn á háskólatorgið og leiðir saman háskólaborgara og bæjarbúa.
Eldri byggingar að Sólborg eru steinsteyptar og einangraðar að innan, nýbyggingar eru steyptar og klæddar múrkerfi að utan. Innréttingar eru spónlagðar með rauðri eik, gólf eru annarsvegar korklögð eða grágrýtisskífur. Stálvirki er sandblásið og olíuborið. Veggir og loft eru máluð í vaxhvítum lit.
Skoðaðu fleiri myndir og teikningar.





