Leikskólinn Brákarborg

Viðbygging og endurbætur 1994. Stærð viðbyggingar 125,6 m2.

Byggt var við leikskólann Brákarborg, sem Þór Sandholt og Ágúst Pálsson teiknuðu. Í viðbyggingunni er hreyfisalur, eldhús og starfsmannaaðstaða. Í enda viðbyggingarinnar er lítið yfirbyggt útileiksvæði.
Leikskólinn stendur á þröngri lóð við Brákarsund, sem er göngustígur milli Sæviðarsunds og Skipasunds. Viðbyggingin er aðlöguð að eldri byggingu í útliti og efnisvali.





HeimasíðaStarfsfólkVerkaskráViðurkenningarFréttirAnnaðNetfangVefhönnun