
| Nesstofusafn | |||||||||||||||||
![]() |
|
||||||||||||||||
|
Lokuð samkeppni eftir opið forval
Nýbygging Nesstofusafns stendur á landamærum sérstæðs útivistarsvæðis og úthverfismyndunar Seltjarnarness. Byggingin er þriðji hluti safnasvæðisins, Lyfjafræðisafnið og Nesstofa hinir tveir. Tillagan gerðir ráð fyrir einnar hæðar byggingu samsetta úr tveimur misháum hlutum. Hærri hlutinn hýsir forsal, sýningarsali, gesta-, kaffi- og kennslustofu. lægri hlutinn inniheldur starfsmanna- og þjónusturými. Aðalrými hússins snúa þannig mót suðri og vestri. Byggingarefni: Forveðraðar zinkplötur sem mynda skarsúð, sjónsteypa, lakkaðir álgluggar og hurðir, láréttir fururimlar, þak klætt dúk og lagt torfi. Gólf steinsteypt, slípuð og bónuð, veggir ljósir og viðarinnréttingar. |
|||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||