Höfn í Hornafirði, stærð: 177,0 fm.
Unnið er að endurbyggingu hússins. Í fyllingu tímans mun það hýsa sjóminjasafn á neðri hæð, og kaffihús og sýningarsal á efri hæð.
Húsið er hluti af heildstæðu safni húsa á hafnarsvæðinu, sem ætlun er að varðveita sem safna- og ferðamannasvæði.
Aðalhluti hússins er byggður árið 1930 við hliðina á Gömlu búð, sem þá var verslunarhús Kaupfélagsins.
Neðri hæð hússins er steinsteypt, en milligólf og efri hæð eru úr timbri.